Friðrik J. Arngrímsson lagði fullgert plagg fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur með tveimur eyðum fyrir tvö orð. Hún skrifaði auðvitað ekki undir og Friðrik segir því, að hún ráði ekki við starfið. Forstjóri kvótagreifa er sennilega frekasti og dónalegasti Íslendingurinn. Mafía hans stal kvótanum og veðsetti hann í botn. Mafían hefur undanfarna áratugi getað sagt Sjálfstæðisflokknum fyrir verkum og er óvön andstöðu. Þessi mafía hefur fengið sér handrukkara í Samtökum atvinnulífsins. Þau neita að semja um kaup og kjör, nema Jóhanna gefist upp fyrir kvótagreifum. Jóhanna hefur sem betur fer ekki bognað.