Jólagjöfum rignir

Punktar

Sigmundur Davíð lætur Bjarna Benediktsson örugglega ekki neitt inni hjá sér. Framsókn slær Flokkinn út eftir nokkra daga með enn meiri jólagjöfum. Hærri fiskikvótum upp á fimmtíu þúsund þorskígildi, meira eignarnámi hjá eigendum séreignasparnaðar. Annars var Hitler enn betri hagfræðingur en þeir félagar. Hann útrýmdi atvinnuleysi með því að láta alla hafa vinnu við hraðbrautir og vopnasmíði. Prentaði svo peningaseðla fyrir kostnaðinum eins og prentvélar þoldu. Allir urðu mjög hamingjusamir um nokkurt skeið. Hér bjóða menn upp á lægri skatta og meiri velferð. Frítt. Eins og snákaolíu-sölumenn einir geta.