Jón er ekki sama og séra Jón

Punktar

Helga Vala Helgadóttir ber saman málamyndagerninga. Sumum þeirra hafnar ríkisvaldið og styður aðra. Kerfið brjálast, ef nýbúar giftast til að fara kringum lögin. Kerfið brjálast líka, ef hjón skilja til að fá meiri bætur, fara kringum lögin. Kerfið veitir hins vegar aðstoð, ef Ross Beaty stofnar skúffufélag í Svíþjóð til að fara kringum lögin. Það er ekki sama Jón og séra Jón. Hjónabandi og skilnaði er hafnað vegna málamyndagernings. Því á líka að hafna skúffufyrirtæki. Katrín Júlíusdóttir og Unnur Kristjánsdóttir og lagatæknar þeirra hafa vondan málstað.