Jón stóra í Kryddsíldina

Punktar

Ég legg til, að handrukkarinn Jón stóri verði með í kryddsíld Stöðvar 2 um áramótin. Þessi innantómi veizluþáttur varð óvart táknmynd hrunsins, þegar langþreytt fólk stöðvaði beina útsendingu. Enn minnast menn hinna velklæddu aumingja innan um freyðivínið, meðan andófsfólk kippti köplum úr sambandi. Jón stóri er líka fulltrúi ársins 2007, innantómur bjáni, sem Stöð 2 hossaði um daginn í prinsessuviðtali. Ef hafa á retro þátt í sjónvarpi, þarf að vera stíll yfir honum. Ekki er nóg að láta pólitíska aumingja setja upp álhatta í boði Rio Tinto Alcan. Til að fullkomna 2007 rugl Stöðvar 2 vantar Jón stóra.