Kaldárhöfðasverðið

Punktar

Frábær er hugmyndin um að reisa átta metra höggmynd af Kaldárhöfðasverðinu við Þjóðminjasafnið. Myndin í DV á miðvikudaginn af fyrirhuguðu sverði reknu á ská í Melatorg segir allt sem þarf. Höggmyndin yrði eitt helzta einkenni borgarinnar og einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna. … Betra væri þó að færa sverðið af torginu sjálfu yfir á kantinn Þjóðarbókhlöðumegin, þar sem gera má bílastæði, svo að ferðamenn leggi sig ekki í lífshættu við að mynda hver annan framan við sverðið. Það er nefnilega nauðsynlegt til frægðar mannvirkjum, að hægt sé að láta mynda sig við þau. …