Kalkúnn og skata

Punktar

Þekki sem betur fer engan, sem vill bjóða mér í skötuveizlu. Því mun ég engra harma hafa að hefna frá 2009. Fjöldi manns hefur árlega þjáðst af lykt af kæstri skötu. Ég slepp líka við að éta kalkún 2009. Þeim, sem ekki þekkja hann, bendi ég á, að hann bragðast eins og pappírsgrautur, sem notaður var fyrr á öldum við skreytingar í leikhúsum. Þrátt fyrir skötuna hefur þjóðin haft tíma til að venja sig við þennan bragðminnsta mat í heimi. Rétt eins og Íslendingum beri skylda til þakkargjörðar, þótt illa liðnir og trúvilltir nautna-hatarar og kalvínistar kæmust heilu og höldnu 1620 til Massachusetts.