Nú er alveg að koma að kanínunni úr hattinum. Enginn fær tékka í pósti. En búin verður til bókhaldsbrella: Höfuðstóll ákveðinna skulda verður lækkaður, þannig að skuldarar fá léttari byrði að mörgum árum liðnum, ekki næstu árin. Einhver þarf að kosta brelluna. Trikkið hjá sjónhverfingamanninum er að fela brelluna. Líklega lendir hún á ríkissjóði og þá ekki fyrr en að mörgum árum liðnum. Kemur ekki fram í bókhaldi ríkissjóðs, því þar vantar skuldbindingar ríkisins til langs tíma. Gagnrýni verður sópað burt með því að segja vandann verða leystan, þegar þar að kemur. Þetta verður kanína galdrakarlsins mikla.