Kastljós á kvislingana

Punktar

Látið er liggja að því, að nafnlausir þingmenn stjórnarflokkanna, líklega Samfylkingarinnar, standi gegn nýju stjórnarskránni. Muni t.d. ekki fallast á dagskrártillögu um atkvæðagreiðslu fyrir þinglok. Fróðlegt væri að vita, hvaða þingmenn. Árna Páli Árnasyni dugar ekki að veifa hótuninni eins og einhverri staðreynd eða náttúrulögmáli. Við þurfum að láta reyna á málið. Ekki gengur, að einhver Samfylkingarmaður geti í skjóli nafnleysis stöðvað merkasta mál þingsins. Stöðvað málið, sem felur í sér svo mörg framfaramál. Einhvers staðar leynast kvislingar í skúmaskotum. Beinum kastljósi að þeim.