Kattarþvottur á spillingu

Punktar

Fjármálaeftirlitið hefur gefið skilanefnd Landsbankans syndakvittun. Það hefur samt ekki svarað neinni spurningu, sem risið hefur vegna málsins. Það hefur ekki útskýrt misræmi milli yfirlýsinga nefndarmanna og spunakarls nefndarinnar. Hefur ekki útskýrt, hvernig örlagafundur nefndarinnar var haldinn. Fyrir eða eftir sjónvarpsfréttir, á einhverjum stað eða í síma? Almenningur verður bara að gera upp við sig, hvort það treystir eftirlitinu í þessu máli. Ég hef gert það upp fyrir mitt leyti: Spillt Fjármálaeftirlit undir nýjum forstjóra hefur kattarþvegið gerspillta skilanefnd Landsbankans.