Kínverskur megrunarkúr

Punktar

Sjanghæ … Sjanghæ við Laugaveginn er sennilega eina Kínahúsið í heiminum, sem býður holl hýðishrísgrjón í stað mjallhvítra Beri-Beri hrísgrjóna. Aðeins í South Beach megrunarseðli Magnúsar á 1.900 krónur á mann er boðið kolvetnissnautt, ósykrað og canola-fitað töfrafæði að hætti eigandans fyrir offitusjúklinga. Þjónustan faldi hins vegar megrunarseðilinn, svo að ég gat ekki prófað hann. … Sjanghæ býður hlaðborð í hádeginu fyrir 980 krónur, betra en hlaðborðið í Asíu neðar við götuna, en samt ekki lystugt. …