Kjánar styðja leiðtoga sinn

Punktar

Forseti Íslands er ósáttur við kröfu sannleiksnefndarinnar um siðareglur embættis forsetans. Telur hana furðulega framkomu við sjálfan forsetann. Frábiður sér bréf forsætisráðuneytisins um það efni. Klappstýra útrásarinnar er greinilega komin í harða kosningabaráttu fyrir endurkjöri. Kjánarnir, sem kallaðir eru kjósendur, munu styðja leiðtoga lífs síns og klappa upp klappstýruna. Ólafur Ragnar getur því haldið áfram að plaga heilbrigða skynsemi í fjögur ár til viðbótar hið minnsta. Getur haldið áfram að lýsa yfir stríði gegn vinaþjóðum okkur og ást sinni á fjarlægum einræðisherrum.