Kjósendur í algerri afneitun

Punktar

Bankastjórar og bankaeigendur stálu villt og galið eins og enginn væri morgundagurinn. Ríkisstjórn og embættismenn Flokksins plægðu jarðveginn fyrir þá. Þingmenn Flokksins eru flæktir upp fyrir haus í fjárglæfrum, Þorgerður Katrín skuldar nærri tvo milljarða. Að baki þessarar ormagryfju eru kjósendur Flokksins. Töldu rétt að kaupa rekstrarvörur á borð við bíla og flatskjái út á krít. Þramma meira að segja út á Austurvöll að heimta afskriftir skulda sinna. Hugarfar þeirra er mengað af hugarfari græðginnar. Gjaldþrota heimta þeir ilmbaðstofu í World Class, eru í algerri afneitun.