Síðbúin er sú atvinnugrein að taka kaup hjá klámkóngum fyrir að láta taka klámmyndir af sér. Miklu betri klámmyndir eru ókeypis á YouPorn.com, Þangað senda kynlífsfíklar myndskeið af athöfnum sínum. Vefsvæðið er eins konar YouTube fyrir fólk, sem vill sýna sig og sjá aðra. Um þetta mun gilda sama lögmál og um fréttirnar. Þegar farið var að segja fréttir ókeypis, hætti fólk að vilja kaupa fréttir. Nú er farið að sýna klám ókeypis og þá hættir fólk að vilja kaupa klám. Þar með leka fæturnir undan einni umsvifamestu og raunar elztu atvinnugrein mannkyns. Síðustu forvöð að fá borgað eru núna.