Klósettferðahlé

Punktar

Vitringar segja, að einnar mínútu auglýsingahlé í áramótaskaupinu sé gott. Leikstjórinn segir skaupið vera beinlínis klippt á forsendum hlésins. Hann og aðrir benda á, að kjörið sé að fara á klósett í auglýsingahlénu. Einn vildi þó nota tímann til að kveikja í flugeldum. En enginn talar um Remax. Gjafmilt fyrirtækið borgar þrjár milljónir til að gera fólki kleift að komast á klósett. Án þess að missa af neinu, að sögn leikstjórans og sumra álitsgjafa. Engum dettur í hug, að fólk horfi á sjónvarpsauglýsingu. Þó er klósettferðafólk reiknað með í snertiverði auglýsinga per áhorfanda.