Kolkrabbinn og kóngulóin

Punktar

Feneyjar … Þetta var í hádeginu, ég hafði verið með fyrirlestur á ráðstefnu á Cini úti á eyju heilags Georgs daginn áður, hafði skemmt mér með nokkrum félögum um nóttina og var ekki fyllilega góður í maganum. Ég var í fyrsta skipti á veitingastaðnum Antica Besetta í Feneyjum hjá Volpe-hjónunum. … Þar var enginn matseðill, heldur fékk maður bara það, sem var á boðstólum þann daginn. Fyrir mig var lagður diskur með heilum kolkrabba, þar sem armarnir láku út af brúnunum. Milli þeirra var góðgæti úr skeljum. En kolkrabbinn horfði á mig. Allt fór af stað í maganum og í fyrsta skipti á ævinni gat ég ekki borðað matinn minn. Eftir að hafa nagað tvo arma kolkrabbans flúði ég af hólmi. …