Kóngur er fallinn

Punktar

Felldi Kóng og heygði í gær. Hann var orðinn 29 vetra gamall og glampinn horfinn úr augum. Missti bezta vin sinn Stíg í sumar og var oftast einn í stóðinu. Hefði ekki lifað af veturinn. Verst er, að ekki er hægt að afgreiða okkur gamlingjana á sama hátt. Kóngur var Þráðarson Sörlasonar hins eina sanna. Kallaður höfðingi af hestamönnum. Einn þeirra hesta, sem eru hastir á brokki, en virðulegir, þegar þeir kasta toppi á tölti. Hann væri tízkuhestur nú á tímum. Var þolgóður og þjónaði mér í öllum mínum mörgu hestaferðum, unz hann fór óbilaður á ellilaun fyrir níu árum.