Við erum í kostulegum bófaflokki, sem heitir Nató. Þar stjórna hin stríðsóðu Bandaríkin. Þau borguðu Isis fyrir að berjast við Assad Sýrlandsforseta. Misstu svo tökin á Isis eins og þau misstu áður tökin á Al Kaída. Nató er í sömu villu og Bandaríkin, styður nú árásir Tyrkja á Kúrda, helztu óvini Isis í Sýrlandi og Írak! Ruglið er auðvitað engu lagi líkt. Bandaríkin eru alltaf í vinfengi við verstu bófa heims. Minna á ÓRG. Glötuðu völdum í Suður-Ameríku, sitja uppi með Sádi-Araba á Arabíuskaga, sem rækta terrorista gegn vestri. Nefnum ekki Ísrael. Við getum verið í ruglinu okkar hérna heima, án þess að taka líka þátt í Nató.