Kræklingur og humar

Punktar

Humarhúsið. … Humarhúsið er eitt þriggja beztu veitingahúsa landsins. Þetta er gamalflottur staður með fínni matreiðslu á fiski og frábærum humri grilluðum, með hvítlaukssmjöri og stöngum af kexi og grænmeti, kjörinn til að sýna útlendingum, að hér sé siðmenning. Ef við fáum okkur í forrrétt ferskan íslenzkan krækling í skelinni úr Hrísey, er stemmningin fullkomin, toppurinn á tilverunni …