Kröfurnar eru leyndarmál

Punktar

Frekasta starfsmannafélagið lýsir stuðningi við launastríð slökkviliðsmanna og sjúkraflutningamanna. Ekki er amalegt að fá stuðning flugumferðarstjóra, þegar reynt er að kúga gjaldþrota þjóðfélag. Formaður slökkviliðsmanna og sjúkraflutningamanna sagði i sjónvarpinu, að kröfurnar væru leyndarmál. Ég skil vel, að hann vilji ekki, að fólk komist að sannleikanum um kröfurnar. Veruleikafirrt stéttarfélög þarf til að reyna að nauðga þjóðinni, er verst gegnir. Slökkviliðsmenn og sjúkraflutningamenn hafa skipað sér við hlið flugumferðarstjóra. Allir eiga þeir enga hækkun skilið, frekar launalækkun.