Kúvending Flokksins

Punktar

Þegar ég kynntist Sjálfstæðisflokknum fyrir hálfri öld, var hann mikið fyrir kaupmenn og vildi frjálsa verzlun. Ekki lengur. Kvótagreifar hafa keypt hann og Moggann með húð og hári. Nota Moggann til að stýra Bjarna Benediktssyni formanni og sveigja hann að hagsmunum sínum. Þeir felast í, að kvótagreifar megi nota evru og vera í alþjóðlegum heimi, en launaþrælar skuli nota ónýta krónu og lifa í læstu Íslandi. Áróðri fyrir þjóðrembu er beitt til að sætta þrælana við ömurlegt hlutskipti. „Ísland er bezt“ er hrópað, þótt vitað sé, að við erum bananaþjóð. Afleiðingar eru viðræðuslit við lýðræðisríki Evrópu.