Læra ekki af óförum

Punktar

Richard Nixon var mesta bulla, sem setið hefur á forsetastóli Bandaríkjanna. Hann höfðaði mál gegn New York Times út af birtingu Pentagon-skjalanna og tapaði því. Var birtingin þó hliðstæð birtingu New York Times á Wikileaks-skjölunum. Höfðaði líka mál gegn Washington Post og tapaði því. Höfðaði mál gegn Daniel Ellsberg, sem hafði stolið skjölunum og koltapaði því einnig. Barack Obama er á sömu fasistabraut og Richard Nixon. Báðir eru fasistar í raun og nota orðalag Bjarna Benediktssonar. Segja að stuldur skjalanna og birting þeirra séu ólögleg. Dómstólar í Bandaríkjunum voru á allt öðru máli.