Lágkúra forsætisráðherra á sér engin takmörk. Áratugum saman hefur enginn pólitíkus farið með annað eins bull og þessi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fer nánast aldrei með rétt mál, talar oftast ekki einu sinni um málið, heldur fer út í aðra sálma. Einkum byrjar hann oftast mál sitt á fullyrðingu um, að hann sæti ofsóknum. Lofar öllu, sem honum dettur í hug, gleymir því jafnóðum. Hefur kringum sig almannatengla, sem telja honum trú um, að pupullinn sé heiladauður og meðtaki hvaða þvætting sem er. Margir pólitíkusar hafa um tíðina fært í stílinn. En Sigmundur Davíð einn er fullkomlega siðblindur.