Landi með bláberjum

Punktar

Landbúnaðarráðuneytið berst gegn því, að bændur verði frjálsir. Vill, að öll búvara fari um vélar vinnslustöðva. Berst gegn stefnunni “Beint frá bónda”. Ég vil geta selt Kaldbaks-rjúpur og Kaldbaks-gæsir, Kaldbaks-bleikju og Kaldbaks-landa með bláberjum. Geta selt Kaldbaks-ís og Kaldbaks-jógúrt, Kaldbaks-jarðarber og Kaldbaks-hjónasælu, Kaldbaks-hangikjöt og Kaldbaks-svið. Auðvitað allt lífrænt vottuð vara. Þá á ég ekki við gervi-vistvænt vottaða. Ráðuneytið vill, að bændur séu þrælar einokunar afurðastöðva. Vill ekki aðlagast Evrópusambandinu, því að aðild mundi frelsa íslenzka bændur.