Landvörnum er lokið

Punktar

Þá er loksins komið að varnarlausu Íslandi. Orion-flugvélar svonefnds varnarliðs eru horfnar og áhafnir þeirra líka. Að venju hafði Bandaríkjastjórn ekkert samband við íslenzku ríkisstjórnina, sem hún fyrirlítur eins og aðra útlendinga yfirleitt. Utanríkisráðuneytið kom að venju af fjöllum. … Flugvélarnar verða ekki vistaðar hér aftur, enda er horfinn óvinurinn mikli, sem var forsenda þeirra. Sovétríkin eru dauð og Rússland er ekki hættulegt öðrum en landamæraríkjum sínum. Atlantshafsbandalagið er í tilvistarkreppu og reynir með döprum árangri að afla sér framhaldslífs í Afganistan. …