Lasin þjóðin brjálast

Punktar

Íslendingar eru lasnir af þjóðrembu og vænisýki. Höfum reynsluna af meintri frábærni þjóðarinnar. Frábærnin lýsir sér í að láta tryllta fjárglæframenn og pólitíkusa hafa æruna af sér. Til að hindra það höfðum við Davíð í Seðló og Jónas í eftirliti. En Davíð afnam bindiskylduna og grýtti 300 milljörðum í bankana án þess að taka veð. Þannig urðum við gjaldþrota, áður en kom að IceSave ruglinu. Einkavinavæddi Davíðsbankinn drýgði þann glæp. Davíð lofaði skriflega fyrir ári, að við borguðum tjónið. Nú eru aðrir að reyna að draga þjóðaræruna aftur að landi. Þá brjálast hin þjóðrembda og vænisjúka þjóð.