Launahár fasteignasali

Punktar

Fasteignasali fékk í gær skilorðsdóm fyrir margs konar svik og svindl. Hann var í náð dómarans. Það er fjórða skilorðið, sem hann fær. Fjórða skilorðið í röð. Greinilega fínn kall. Fyrir utan fjórða skilorðið fær hann rúmar 130.000 krónur á dag fyrir að sitja af sér sektina. Það eru margfalt hærri daglaun en Lalli Jóns hefur fyrir að sitja af sér sígarettuþjófnað. Hver verða daglaun hrunstjóranna, þegar dómarar Sjálfstæðisflokksins fara að reikna þeim kaup fyrir að sitja af sér sektir? Milljarður króna á dag? Það er ekki sama, hvort undirstéttir eða yfirstéttir fremja glæpi sína í röðum.