Leiðar spennubækur

Punktar

Löngu búinn að fá leið á hver-gerði-það bókum, einkum um læstu herbergin. Fæ gæsahúð af Agatha Christie og eftirmönnum hennar. Dorothy SAYERS hefur enzt skást þeirra. Sama er að segja um hefðbundnar spennubækur, Helen MACINNES er elzt og skást, nýjastur og verstur Dan Brown. Sálarflækjur SIMENON bera af. Götumyndir og þorpsmyndir hans er góðar, einnig Donna LEON um Feneyjar og Barbara NADEL um Istanbul, líka Philips KERR um Berlín, Martin Cruz SMITH um Moskvu og jafnvel Andrea CAMILLERI um Sikiley. Spenna er góð í hófi, en meira gaman er að upplagi fólks og uppeldi, umhverfi og pólitískri sýn þess.