Útlendingastofnun hefur löngum verið atvinnubótastofnun fyrir íhaldsfrúr. Löngum verið fræg að endemum, sameinar leti, heimsku og siðleysi. Nú hefur steininn tekið úr, þegar menn þurfa að bíða í sjö ár og fá samt ekki lausn sinna mála. Stofnunin krefst, að flóttamenn fái vottorð frá pyndingastjórum um, að þeir hafi verið pyndaðir! Stofnunin gæti verið fyrirmynd að skáldsögu eftir Kafka. Svo þegar Sjálfstæðisflokkurinn stýrir ekki illræmdri stofnun mannvonzkunnar, segir Ögmundur Jónasson bara “humm” og “ha”. Leggja ber niður stofnun hins illa. Setja í staðinn upp símsvara, sem segir “pass”.