Lítið brot í húsi

Punktar

Bjarni Benediktsson vill, að þú haldir, að keyptur verði listi yfir íslenzka reikningseigendur í skattaskjólum. Er villandi, samþykkt hefur verið að kaupa lista sex nafna úr gögnum um HSBC-bankann. Einnig segist skattrannsóknastjóri hafa brezkan lista tíu nafna. Ekkert kemur fram um franska listann, þar sem íslenzku nöfnin eru margfalt fleiri. Eva Joly bauðst til að hafa milligöngu um, að hann fengist ókeypis. Fjármálaráðherra og skattrannsóknastjóri þegja þunnu hljóði um þann lista, sem skiptir margfalt meira máli. Þess vegna er ótímabært að hefja fagnaðarlæti út af þeim sextán nöfnum, sem sögð eru vera komin í hús.