Litlu blórabögglarnir

Punktar

Ekki er nógu vel leitað að blórabögglum. Þeir stærstu hafa verið fundnir, stjórnendur ríkis, seðlabanka, fjármálaeftirlits, útrásarbanka. En að baki djöflana eru margir púkar. Hverjir skipulögðu árás á gamla fólkið? Ginntu það til að færa eignir úr traustum sjóðum yfir í peningasjóði? Her manns var á háum bónusum allt þetta ár við að misnota bankaupplýsinar um fjárhag gamals fólks. Hringt var í það og útmálað fyrir því, hversu frábært væri að færa eignirnar til. Við þurfum líka að gera upp sakir við þessa sölumenn. Voru það ekki örugglega sölumenn græðginnar, sem voru reknir um daginn?