Ljúft fyrir þjóðrembuna

Punktar

Íslendingar áttu þetta skilið. Þurfa líka á þessu að halda. Í einu erum við góð, í handbolta. Um restina er bezt að tala sem minnst. Við getum ekkert í pólitík, efnahagsmálum og peningamálum. Eina landið í heiminum, sem setti Seðlabanka sinn á hausinn. Eina landið með Davíð og dvergana í bönkunum. Strákarnir okkar, strákarnir okkar, okkar, okkar- eru með fullt hús stiga. Kærkomið frí frá hrunfréttum og fréttum af hægu uppgjöri við fortíðina. Þörf þjóðarinnar á að fá trú á sjálfa sig magnaði liðsanda landsliðsins í handbolta. Hjálpaði þeim gegnum forkeppnina. Höfum samt þjóðrembuna í hófi.