Af þeim sem sækja til arfs eftir Bobby Fischer hefur Miyoko Watai ein gert eitthvað fyrir hann. Fyrir utan hana er eini lögerfinginn dóttir hans, Jinky Young. Ættingjar Fischers í Bandaríkjunum eru aumingar, sem aldrei gerðu neitt fyrir hann, afneituðu honum meira að segja. Þeir munu ekki komast að troginu. Íslenzk lög eru einföld. Sambýliskonan á helming og fær helming af rest, samtals þrjá fjórðu. Börn fá samtals einn fjórða á móti. Aðrir eru ekki lögerfingjar eftir Fischer. Eina ágreiningsefnið er röfl um gildi sambúðartexta Fishers og Miyoko, væntanlega tekinn gildur hér á landi.