Stjórn Gylfa Magnússonar á bankaráðueytinu er engin. Spillingin veður uppi í fjármálastofnunum sem aldrei fyrr. Bankasýsla ríkisins gerir nákvæmlega ekki neitt. Bankastjórar eru sannfærðir um, að gjaldþrota fjárglæframenn séu þeir einu, sem geti rekið fyrirtæki. Ríkisstyrktir bankar velta kúlulánum sinna smákónga fram í endalausa framtíð. Skilanefndir og slitastjórnir borga sér sex-sjö milljónir króna í mánaðarlaun. Í guðanna bænum losið þjóðina undan ánauð Gylfa Magnússonar. Hann er umboðsmaður þeirra, sem komu okkur á hvolf. Hann sér um, að svindl og svínarí fái áfram að blómstra í fjármálastofnunum.