Röðin er komin að lykla- og gjaldþrotalögum Lilju Mósesdóttur. Líknandi lögum, sem gera fólki kleift að ganga úr íbúðum sínum og sitja eftir á núlli. Ríkissjóður hefur ekki efni á að leysa fleiri vanda. Alls ekki nein dæmi upp á tugi milljarða. Gjaldþrot verða bara að hafa sinn gang, enda er komið í ljós, að afskriftir leysa vanda fárra. Aðgerðir í fjármálum verða að víkja fyrir aðgerðum í félagsmálum. Heilbrigðismál verða að ganga fyrir afskriftum. Setjið lyklalög og gjaldþrotalög Lilju, svo að fólk losni úr þessum gapastokki, sem Davíð og Halldór og Geir smíðuðu fyrir mörgum árum.