“Er ekki rétt að fara að ræða nánar um það, að Seðlabankanum er stýrt af manninum sem átti að vera búinn að koma upp gjaldeyrisvarasjóði og aukinni bindiskyldu banka fyrir mörgum árum. Manninum sem sagði að evran væri ónýtur gjaldmiðill. Manninum sem sagði að Evrópa væri ekki á dagskrá og kom einn og sjálfur í veg fyrir að stefna yrði mörkuð sem hefði komið í veg fyrir að við stæðum í þessum sporum nú.” Þetta sagði Pétur Gunnarsson á eyjan.is/hux réttilega um Davíð Oddsson, sem enn veldur okkur stórfelldum vandræðum. Fá orð segja alla söguna um skelfilega stjórn á Seðlabankanum.