Eftir breytingar er góður meirihluti á Alþingi fyrir frumvarpi um breytingar á stjórnarráðinu. Ofbeldishneigð stjórnarandstaða heldur samt uppi málþófi. Sumir þingmenn hennar eru á mælendaskrá í fjórða eða fimmta sinn. Þeir þylja endalaust sömu möntruna. Ekki kemur til greina, að stuðningsmenn málsins gefi meira eftir en orðið er. Halda þarf hvern næturfundinn á fætur öðrum til að hálfvitarnir fái svigrúm til að misnota þingsköp til fulls. Ekki er nein ástæða til aðildar annarra að þessu málþófi. Mikilvægt er, að þingmenn málþófsins verði sér til eins mikillar skammar og framast er unnt.