Mannval frjálslyndra

Punktar

Dularfullt er, að smákrimmar á borð við dæmdan síbrotamann í ölvunarakstri og flóttamann frá tryggingamáli erlendis í tengslum við dauðaakstur skuli opinberlega sækjast eftir völdum í Frjálslynda flokknum. Ekki er nýtt, að fólk hafi óhóflegt sjálfstraust og vanmeti vandræði, sem það hefur bakað sér. En það er ofvaxið skilningi mínum, að til umræðu sé í stjórnmálaflokki hér á landi, að slíkt fólk sæki fram til pólitískra áhrifa. Ekki er gæfulegt fyrir flokk að vera með trúnaðarmenn og jafnvel þingmenn, sem hafa brotið lög eða eru á flótta undan lögum og rétti.