Mansal barnaverndarnefndar

Punktar

Áður en vasast er í að fangelsa útlendinga, sem eru grunaðir um mansal, er viturlegra að skoða Barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Hún ætlaði að afhenda barn í hendur skrítins fólks austur á fjörðum. Karlinn í þeirri fjölskyldu stundar rað-sambúðir. Útvarp Saga ljóstraði upp um, að nýjasta konan er ekki viðræðuhæf í síma. Barnaverndarnefnd og starfsmenn hennar ætluðu að taka barnið af ágætri ömmu og fela það í hendur þessa undarlega fólks. Er ekki kominn tími til að óska eftir gæzluvarðhaldi nefndarinnar og starfsfólksins? Þar virðist gamla Kumbaravogs- og Breiðuvíkurstemmningin vera enn í gangi.