Framsókn hefur alltaf verið flokkur hræddra, sem óttast og hata hið nýja og ókunna. Fyrst var einkum Reykjavík tilefni óttans og hatursins. Síðan bættist útlandið við á þessari öld, einkum Evrópa og Evrópusambandið. Hin þjóðrembda minnimáttarkennd þótti krúttleg til skamms tíma. Til dæmis fyndið dálætið á mesta bjálfa Íslendingasagna, Gunnari Hámundarsyni. Það var svo tímaspursmál, hvenær Framsókn færi að fiska eftir atkvæðum rasista. Nú lýsa Breivik-istar opinberlega stuðningi við þennan flokk ótta og haturs minnimáttarfólks. Mesta krútt Framsóknar, Guðni Ágústsson, kveinar yfir afleiðingunum í Mogga í dag.