Sigmundur Davíð Gunnlaugsson las ekki IceSave nógu vel, áður en hann setti þumalinn niður. Fullyrðir, að Landsbankinn telji heildsölulán sveitarfélaga og stofnana ekki vera forgangskröfu. Rétt er, að Landsbankinn telur þessi lán vera forgangskröfu. Á þessu tvennu munar 145 milljörðum króna. Mislestur formannsins er stærsti mislestur Íslandssögunnar. Kappar á borð við Kristján Gunnarsson verkalýðsrekanda í Keflavík hverfa eins og tungl fyrir sólarljósi Sigmundar flokksformanns. Ótvíræðs Íslandsmeistara í mislestri. Enginn annar Íslendingur fyrr eða síðar hefur mislesið eina tölu um 145 milljarða króna.