Ímyndunarfræðingar, markaðsstjórar og almannatenglar 365 miðla vissu vel, hvern þeir voru að gera að sínu helzta vörumerki. Ritstjóri og útgefandi símaskrárinnar vissu það líka. Vörumerkið var frægast fyrir nokkrum árum, þegar það hvatti til nauðgana á fjölmörgum nafngreindum konum, sem fóru í taugar þess. Í vinsælu bloggsetri lýsti vörumerkið nákvæmlega hvernig ætti að nauðga hverri og hver ætti að framkvæma það í hverju tilviki. Sá prúði texti hefur nú verið rifjaður upp af gefnu tilefni. Skrítnast við málið er, hvernig fullorðnir markaðskarlar hjá 365 gátu litið framhjá slíkri geðbilun.