Misheppnuðu gróðapungarnir

Punktar

Misheppnaðir gróðapungar reyna að smeygja sér undir regnhlíf skjaldborgar um heimilin í landinu. Vilja, að ráðstafanirnar gangi upp verðmætaskalann. Ekki sé bara slegin skjaldborg um þá, sem offjárfestu í 30 milljón króna íbúð og 3 milljón króna bíl. Heldur líka um þá, sem offjárfestu í 70 milljón króna einbýlishúsi og 7 milljón króna jeppa. Dæmi um heimtufrekjuna er Kaffistofan á Pressunni, málgagni gróðapunga. Aldrei var markmið ríkisstjórnarinnar að bjarga öllum á kostnað skattgreiðenda, aðeins þeim, sem minnst mega sín. En gróðapungarnir eru lagnir við að fela frekju sína undir hatti almennings.