Missið ekki af Stiglitz

Punktar

Þið þurfið ekki annað en að horfa á landsstjóra Alþjóða gjaldeyrissjóðsins til að fatta, að hann er undirmálsmaður. Franciszek Rozwadowski getur ekki komið óbrenglaðri hugsun frá sér. Svona er Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, safn undirmálsmanna með þúsundir mistaka á bakinu. Nóbelsmaðurinn Joseph Stiglitz rekur þau í bókinni Globalization And Its Discontents. Verst er, að þeir skilja ekki gagnrýnina og halda áfram að þröngva úreltri hagfræði auðhyggju og alþjóðaauðvalds niður í kok á varnarlausum þjóðum. Joseph Stiglitz verður í Silfri Egils eftir viku. Missið ekki af þessum mesta refsivendi sjóðsins.