Mistækur á annan mat

Punktar

Espresso-kaffi var slappt á nýju Rossopomodoro í húsi Iðunnar að Laugavegi 40a, þunnt og sviplaust, án eftirbragðs, líklega ekki úr espresso-baunum, minnti á kaffið í flugstöðunni á Keflavíkurvelli, líklega úr svoleiðis maskínu. … Saltfiskurinn, sem staðurinn mælir með, var ekki heldur góður, of snöggt og of lítið bakaður í álpappír með olífuolíu, tómati, olífum og kapers, sem runnu ekki saman við fiskinn og gátu ekki falið, að fiskurinn var illa útvatnaður. En fiskimagnið var feiknarlegt. …