Móðgelsi sem stjórntæki

Punktar

Að vera móðgaður er þekkt stjórntæki í mannlegum samskiptum. Meðvirkt fólk verður upptekið við að móðga ekki. Lætur undir höfuð leggjast að halda uppi nauðsynlegu áreiti. Lét Davíð í friði á trylltustu árunum. Lét Ólaf í friði, því að hann var biskup. Áreiti er nauðsynlegt í nútímanum. Meðvirkni með móðguðu fólki leiðir til þöggunar. Margir múslimar móðgast of mikið og brenna þá fána og eftirlíkingar af fólki. Trúarhópar eru raunar sérfræðingar í að vera móðgaðir, svo og ýmsir rúmfrekir minnihlutahópar. Þjóðfélagið væri mun betra, ef móðguðum hópum væri sýnd meiri ögrun. Meiri myndir af Múhameð.