Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn leyfir frekari úrræði í skuldavanda heimilanna. Lygafrétt Davíðs Oddssonar um bann við frekari aðgerðum hafði mikil áhrif á fólk. Samt eiga menn að vita betur en að trúa Mogga. Sjóðurinn bannar bara flatan afslátt af skuldum. Mundi gera skattgreiðendur gjaldþrota. Vilji stjórnin fylgja forskriftinni, ber henni fyrst að stöðva afskriftir á lánum kvótakónga og fjárglæframanna. Mismunun Jóns og séra Jóns. Bankar framfylgja ekki heldur úrræðum fyrir fólk. Rekið bankabófana strax í dag. Samþykkið lyklafrumvarp Lilju Mósesdóttur á morgun. Og komið nýju úrræðunum í verk.