Möllin og miðbærinn

Punktar

Íslenzku möllin í Kringlunni og Smáralind eru krækiber í samanburði við 400 verzlana Mall of America í Bloomington í Minnesota, sem senn á að tvöfalda að stærð og gera að “áttunda furðuverki veraldarinnar” með ótal kaffi-, vín- og veitingahúsum, tívolíi, dýragarði og fjölskyldugörðum. … Möllin rísa, þar sem miðbæir verjast ekki, svo sem víða hefur gerzt í Bandaríkjunum, svo sem í Dallas, Los Angeles, Atlanta og Buffalo, en ekki í New York og San Francisco, einnig sums staðar í Englandi, svo sem í Liverpool og Manchester. Möllin taka við, þegar miðbæir fara að deyja. …