Múgsefjun læmingjanna

Punktar

“Áfram Ísland” kyrja læmingjrnir á hlaupum sínum fram á hamrabrúnina. “Við viljum sanngirni” segja hortugir unglingar, sem þykjast vera sjálfstæð þjóð. “Stöndum saman um fullveldið” segja Evrópuhatarar. Múgsefjun þjóðar, sem lifir ekki á neinu öðru en að afla gjaldeyris. Hér væri nefnilega ekki líft, ef ekki kæmi til innflutningur á eldsneyti og mat. Samt er eyjarskegginn svo ríkur í fólki, að það greiðir vef-atkvæði um, hvaða þjóðir séu mestu óvinir sínir. Þjóðrembdir Íslendingar halda samt, að erlendis flykkist menn um málstað okkar. Svo er ekki, flestir telja okkur vera vanþroska frekjuhunda.