Múslimar stöðvi Salman

Punktar

Flestir reyna að laga sig að siðum og lögum nýrra heimkynna. Sumum múslimum reynist það erfiðara en flestum öðrum. Salman Tamini hefur verið hér um áratugi, en hefur lítið lært af veru sinni. Reyndi að spilla fyrir skilnaði systur sinnar Amal og forræði hennar yfir börnum sínum. Salman var bundinn fastur í meinta siði miðausturlanda. Þar vill karlinn ráða yfir konunni og hafa forræði barnanna eftir skilnað. Þetta er gamaldags karlremba, sem hefur verið aflögð hérlendis. Salman verður að sætta sig við það. Félag múslima á að banna slíkri karlrembu að tala fyrir hönd múslima. Skaðar málstað íslenzkra múslima.