Næstumþví afnám bankaleyndar

Punktar

Óttast, að fyrirhuguð lög um næstumþví afnám bankaleyndar verði hvorki fugl né fiskur. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra segir að vísu, að afnema beri hana alveg. En sumir valdamenn vilja ekki afnema hana, til dæmis ekki Gylfi Magnússon. Ég óttast, að Páll Sigurðsson verði fenginn til að semja lögin. Hann hefur reynslu frá lögunum um upplýsingaskyldu stjórnvalda. Sem gerðu kerfið lokaðra en það var áður. Hann er fær um að semja lög um afnám bankaleyndar, sem fela í sér aukna bankaleynd. Kerfiskarlarnir ætla að sjá til þess, að því meira, sem hlutirnir breytast, því meira séu þeir eins.